Sjávarpakkhúsið hefur hlotið umhverfisvottun Svansins sem er opinbert norrænt umhverfismerki.

Sjávarpakkhúsið hefur hlotið umhverfisvottun Svansins sem er opinbert norrænt umhverfismerki

 

Við erum afar stolt af að vinna náið með sjómönnum, bændum og matvælaframleiðendum í nágrenni við okkur sem sjá okkur fyrir besta hráefni sem völ er á.

 

Við leggjum áherslu á staðbundin hráefni og sjálfbærni og gerum ávallt okkar besta í að framreiða hágæða mat með eins litlum áhrifum á umhverfið og mögulegt er.

 

Við veljum hráefni og þjónustu úr nærumhverfinu, höldum matarsóun í lágmarki, leggjum áherslu á að minnka orkunotkun, efnanotkun og úrgang.

 

Við viljum vera góð fyrirmynd í umhverfismálum og sýna í verki að umhverfisvernd getur verið sjálfsagður hluti af daglegu lífi.

OPNUNARTÍMI

Fimmtudaga – mánudaga: 18-22

SJÁVARPAKKHÚSIÐ